Bloggfærslur mánaðarins, maí 2018
7.5.2018 | 13:43
Hvað ef þú ættir sex mánuði eftir ólifaða?
Mjög líklega hefur yfirskrift pistilsins annað hvort vakið forvitni þína eða hneykslað þig. Hvort heldur sem er, þá er tilganginum náð og tilgangurinn helgar meðalið í þessu tilfelli.
Nýtt samhengi
Ég man þegar ég heyrði þessa spurningu í fyrsta skipti þegar ég var í markþjálfunarnámi. Hvað ef þú ættir sex mánuði eftir ólifaða?
Kennarinn útskýrði að tilgangurinn með spurningunni, væri að fá fólk til að setja lífið í nýtt samhengi og forgangsraða útfrá gildunum sínum. Því sem skiptir það virkilega miklu máli, raunverulega og að vel hugsuðu máli.
Mér fannst þetta fáranleg spurning. Hvernig í ósköpunum átti ég að geta sett mig í þau spor að ímynda mér að ég ætti aðeins sex mánuði eftir ólifaða? Auk þess þótti mér frekja og ósvífni að spyrja fólk að þessu.
En sannleikurinn er sá að ofsafengin viðbrögð mín við spurningunni, fengu mig til að hugsa. Spurningin hafði þá tilætluð áhrif þegar allt kom til alls. Síðan eru liðin mörg ár og þeir sem hafa verið hjá mér í einkaþjálfun vita að ég nota þessa spurningu stundum. Hún er nefnilega mjög gagnleg því hún er svo sannarlega róttæk og svörin við henni eru því gjarnan eftir því. Líkleg til þess að hjálpa manni að breyta um kúrs eða minnsta kosti átta sig á að sumir hlutir skipta engu máli í stóra samhenginu. Aðrir hlutir skipta hins vegar mjög miklu máli og kúnstin er að átta sig á muninum á þessu tvennu.
Upp úr hjólförunum
Við getum líka spurt okkur þessarar spurningar þegar við viljum losa okkur við ávana eða temja okkur góðar venjur.
Hverju myndir þú breyta ef þú ættir aðeins sex mánuði eftir ólifaða?
- Sleppa fram af þér beyslinu?
- Temja þér meiri aga?
- Fara á fætur klukkan sex á morgnana?
- Nota tímann betur?
- Segja skilið við starfið sem þú fékkst nóg af fyrir löngu?
- Segja fólkinu í kringum þig að þú elskir það?
- Stofna fyrirtækið sem þig hefur dreymt um?
- Gera upp gamlar sakir, þó ekki væri nema til að létta á samviskunni?
- Binda enda á sambönd sem valda þér vanlíðan og þú veist að eru þér óholl?
- Segja fallega og uppbyggjandi hluti við sjálfa/n þig?
- Synda í köldum sjó?
- Lesa bækurnar sem þig hefur alltaf langað að lesa en aldrei komið í verk?
- Upplifa það sem þig dreymir um að upplifa?
- Bættu við því sem vantar á listann þinn...
Hvað ef þetta væri lífstíll?
Margir vita að fólk sem hefur horfst í augu við dauðann er líklegt til að breyta lífi sínu í kjölfarið. Þetta fólk lifir lífi sínu eins og tíminn sé af skornum skammti. Sannleikurinn er auðvitað sá að enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Þetta vitum við en kjósum oftast að líta framhjá því, nema við séum tilneydd að horfast í augu við það. Kannski er dagurinn í dag svoleiðis dagur. Dagur þar sem við horfumst í augu við breyskleika okkar og ákveðum að breyta því sem við getum breytt á meðan tími gefst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
Af mbl.is
Innlent
- Þetta var ógeðslegt
- Slitinn strengur hefur áhrif á net- og símasamband
- Aflýstu flugferð til Portúgal í gær en vélin fer í dag
- Breyta heiminum til hins betra
- Nýja íþróttamiðstöðin á áætlun
- Rennandi blaut tuska framan í íslensk heimili
- Eiga í samtölum við ráðherra um Háholt
- Hefðbundnu virkjanirnar réðu ekki við verkefnið
Erlent
- 30% landsmanna hafa miklar áhyggjur af tollum Trumps
- Einstaklega heimskuleg ákvörðun
- Spánverjar útiloka netárás á raforkukerfið
- 22 fórust í eldsvoða á veitingahúsi
- Segja orsökina liggja í sólar- og vindorku
- Stórbruni í London
- Rafmagn komið aftur á flestum stöðum á Spáni og Portúgal
- Frjálslyndi flokkurinn sigurvegari kosninganna