2.10.2020 | 15:52
Ertu nóg?
Dýpsti ótti okkar er ekki fólginn í því að við séum ekki nóg. Dýpsti ótti okkar er sá að við búum yfir takmarkalausum styrk. Það er ljósið innra með okkur en ekki myrkrið sem hræðir okkur mest. Við spyrjum okkur: hver er ég að halda að ég sé ljómandi, glæsileg, hæfileikarík, stórkostleg manneskja?
Reyndar, hver ertu ef ekki allt þetta? Þú ert barn Guðs. Það þjónar ekki heiminum að þú spilir minni rullu en efni standa til. Það er ekkert uppljómað við það að þú takir minna pláss til að koma í veg fyrir að aðrir verði óöruggir í návist þinni. Okkur er öllum ætlað að skína, eins og börn gera.
Við erum fædd til að vera farvegur fyrir dýrð Guðs sem býr innra með okkur. Hún býr ekki bara í sumum okkar, heldur í öllum. Þegar við látum ljós okkar skína, veitum við ómeðvitað öðrum leyfi til að gera slíkt hið sama. Þegar við verðum frjáls frá eigin ótta, mun nærvera okkar sjálfkrafa veita öðrum frelsi.
Hugsanir eða raunveruleiki?
Þetta prósaljóð eftir Marianne Willamson snerti mína dýpstu hjartans strengi þegar ég las það í fyrsta skipti. Ástæða þess er sú að ég, eins og svo margir aðrir, hef á stundum upplifað að ég sé ekki nóg. Hugsanir á borð við: Ég get ekki gert þetta því ég er ekki nógu klár/gömul/ung/menntuð/hæf osfrv. hafa haldið aftur af mér.
Fyrir þónokkru gerði ég þó merkilega uppgötvun og hún er sú að velflestir ef ekki allir, kljást við sambærilegar hugsanir, að minnsta kosti endrum og sinnum. Mörg okkar kljást við takmarkandi hugsanir en margir ná tökum á þeim og láta þær ekki stoppa sig. En hvað er til ráða í baráttunni gegn takmarkandi hugsunum?
Valdeflandi sjálfshugmyndir í stað takmarkandi hugmynda
Fyrsta skrefið stígum við þegar við áttum okkur á því að umræddar takmarkandi hugsanir eiga rætur að rekja í undirliggjandi hugmyndum eins og til dæmis Ég er ekki nóg.
Ég hef tileinkað mér aðferð til að losna við takmarkandi hugsanir og hugmyndir og skipta þeim út fyrir valdeflandi hugmyndir sem bera með sér valdeflandi hugsanir. Þetta er tiltölulega einföld aðferð sem hægt er að nýta bæði þegar hugmyndirnar snúa að sjálfinu og þegar um er að ræða takmarkandi peningahugmyndir sem skjóta einnig upp kollinum reglulega.
Verum óhrædd
Af orðum Marianne Williamson má ráða að við sjálf erum það eina sem stendur í vegi fyrir okkur. Við þurfum að taka ákvörðun um að standa með okkur. Að trúa því að við megum taka pláss og breiða úr vængjum okkar.
Endilega hafðu samband ef þig vantar hjálp til þess að losna við undirliggjandi sjálfshugmyndir sem standa í vegi fyrir framgangi þínum. Það er léttara en þú heldur að losna við þær og tileinka þér nýjar sem geta veitt þér byr undir báða vængi.
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.