23.6.2017 | 15:52
Hvernig týpa ert þú í sumarfríinu?
Sumarið er komið og margir eru þegar komnir í sumarfrí. Aðrir eiga frí seinna í sumar og leggja nú drög að upplifunum ársins með einum eða öðrum hætti.
En hvernig endurspeglast samband okkar við peninga í ákvarðanatöku og peningahegðun á þessum árstíma? Ég ætla að gera tilraun til að varpa ljósi á líklega peningahegðun peningapersónugerðanna átta þegar sumarfrí eru annars vegar.
Skipulag og ráðdeild
Ef þú ert meðal þeirra sem gæta þess ávallt að eyða ekki um efni fram og finnst peningar vera til að safna þeim ertu líklega Safnari. Ætlir þú að leggja land undir fót hefurðu sennilega keypt flugmiðann með eins löngum fyrirvara og mögulegt er. Þú hefur væntanlega gert fjárhagsáætlun og ert búin/n að komast að því hvaða dag vikunnar er frítt inn á söfnin. Þetta er ekkert til að skammast sín fyrir! Þú þarft bara að muna að leyfa þér að njóta og ef til vill setja inn ákveðna upphæð í fjárhagsáætlunina til að kaupa þér eitthvað fallegt til minningar um ferðina.
Sjálfboðavinna í sumarfríinu
Ef þú hefur unnið sjálfboðavinnu í sumarfríinu þínu, ertu líklega Alkemisti. Þó er ekki svo að skilja að allir Alkemistar vinni sjálfboðavinnu í sumarfrínu hvert einasta ár. En sumarfríið þarf þó að hafa merkingu til að Alkemistanum þyki bragð að. Það þarf að gera eitthvað af viti. Ekki bara flatmaga á sundlaugarbakka og horfa á skýin fljóta um loftin blá. Nei, Alkemistinn er líklegri til að fara í pílagrímsgöngu eða hópferð með góðum vinum eða fjölskyldumeðlimum, sem hægt er að eiga djúpar samræður við.
Annað hvort eða
Ef þú ert Dægurstjarna viltu annað hvort fara í almennilegt frí eða sleppa því!
Upplifanir skipta Dægurstjörnuna miklu máli auk þess sem hún er nýjungagjörn og vill gjarnan kanna nýjar slóðir.
Dægurstjarnan fær mikið út úr því að finna hagkvæmar leiðir til að upplifa lúxus í fríinu. Hún ver gjarnan tíma til að finna út hvenær er hagkvæmast að ferðast. Ferðalög utan háannatíma eru því að skapi Dægurstjörnunnar. Hún gæti hæglega slegið sumarfríinu á frest og tekið sér frí í haust þegar hún getur heimsótt ákjósanlega áfangastaði fyrir lægri upphæð. Á þeim tíma er einnig líklegra að hún fái betri þjónustu og það skiptir hana miklu máli.
Hver borgar?
Tengiliðurinn vill helst ekki fara í frí nema einhver annar borgi brúsann. Þó er ekki svo að skilja að Tengiliðurinn sé nískur. Nei, ástæðan er frekar sú að það skiptir Tengiliðinn meginmáli að verja tíma með góðu fólki. Staðsetningin skiptir hins vegar minna máli. Gott sumarfrí getur þessvegna verið á svölunum heima eða í sundlauginni í hverfinu.
Það getur virkað mjög vel fyrir Tengiliðinn að leggja ákveðna upphæð inn á bók mánaðarlega árið um kring og fá svo einhvern annan í fjölskyldunni eða vinahópnum til að skipuleggja fríið. Þá líður Tengiliðnum vel.
Alltaf að græða
Frumkvöðullinn er týpan sem skellir sér í utanlandsferð með skömmum fyrirvara eftir að hafa fengið endurgreiðslu frá skattinum eða bónusgreiðslu í vinnunni. Hann nýtur hverrar mínútu og sér ekki eftir krónu.
Ef Frumkvöðullinn er langþreyttur eða illa fyrirkallaður er hann líklegri en aðrar peningapersónugerðir til að kaupa sér utanlandsferð út á krít og skipta svo greiðslum fram á haustið.
Einfalt að njóta
Nærandinn leggur mikið upp úr að næra sitt fólk. Það á einnig við um sumarfríið hennar. Hún er líkleg til að eiga sumarbústað þar sem gestir og gangandi fá gjarnan að njóta einstakrar gestristni hennar.
Hún er einnig líkleg til að skipuleggja sérstaka ferð til að halda upp á áfanga í lífi sínu og annarra í fjölskyldunni eða vinahópnum.
Nærandinn er líklegust af peningapersónugerðunum til að snúa til vinnu að loknu sumarfríi, þreyttari en hún var áður en fríð hófst. Það er gott fyrir Nærandann að hafa í huga að hún þarf að efla sjálfa sig til að geta verið til staðar fyrir aðra. Það á við í sumarfríinu, sem endranær.
Hvað kostar fríið?
Stjórnandinn getur verið óraunsær þegar kemur að því að átta sig á hvað sumarfríið kostar. Hann getur langað eitthvert í fríinu en þegar hann sest niður og reiknar út hvað það kostar að fara, getur hann einfaldlega hætt við.
Stjórnandinn er einnig líklegastur af öllum peningapersónugerðunum til að fara ekki í frí. Ástæðan er sú að vinnan tekur mikinn tíma og Stjórnandanum finnst hann ekki hafa lagt nægilega hart að sér til að eiga inni að taka sér frí.
Það er gott að hafa í huga að enginn er ómissandi og það er öllum mikilvægt að hlaða rafhlöðurnar inn á milli líka Stjórnendum.
Að njóta lífsins hvað sem það kostar
Rómantíkerinn er lífsnautnamanneskja sem trúir því að það verði alltaf til meira. Hún sér ekki tilgang með því að spara peninga og kýs frekar að nota þá til að njóta lífsins til fullnustu. Henni finnst hún einfaldlega eiga það skilið að taka sér gott frí.
Frí Rómantíkersins einkennist af því að njóta. Hún vill dekra við fólkið sem henni þykir vænst um og því er hún líkleg til að bjóða einhverjum með sér í fríið. Hún splæsir gjarnan í upplifanir og kaupir minjagripi í formi vandaðs skófatnaðar og fær sér að auki tösku í stíl.
Gleðilegt sumar!
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
Af mbl.is
Innlent
- Samfélögin fóru aftur til miðalda á augabragði
- Hallgrímskirkja varar gesti við
- Í hálfgerðu áfalli
- Vill meiri umfjöllun um fólk úti á landi
- Nýr stjórnarmaður Rúv vill sniðganga Eurovision
- Dró fingur eftir hálsi sér
- Björgólfur sagður hafa fjármagnað njósnir á hluthöfum
- Ný forysta Stúdentaráðs kjörin
Erlent
- Bílaframleiðendur fá undanþágur frá tollum
- Segir innrás Indverja yfirvofandi
- Hafna ásökunum um þjóðarmorð
- Blaðamaður mbl.is: Óvenjuleg árás um hábjartan dag
- Þrír látnir í skotárás í Uppsölum
- Fólk sagt látið eftir skotárás í Uppsölum
- Saka Ísraela enn um þjóðarmorð
- Variety fjallar um nýja íslenska þáttaröð
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.