26.10.2016 | 07:56
Gjöf til þín: Fyrsta skrefið í átt að fjárhagslegu frelsi
Frelsi er hugtak sem hefur mismunandi þýðingu fyrir ólíka einstaklinga. Að sama skapi hefur fjárhagslegt frelsi einstaka merkingu fyrir hvert og eitt okkar. Skilgreiningarnar tengjast gjarnan kjarnagildum okkar en eiga sér rætur í peningasögu okkar.
Flest getum við verið sammála um að við stefnum að fjárhagslegu frelsi. Á einn eða annan hátt er það að minnsta kosti það sem við þráum. Það er þó reynsla mín að fæst okkar eru með áætlun um það hvernig við ætlum að láta það verða að veruleika.
Hvert er fyrsta skrefið?
Eftir að hafa unnið með fjölmörgum einstaklingum að fjárhagslegri valdeflingu, sem markþjálfi get ég fullyrt að fyrsta skrefið í átt að fjárhagslegu frelsi er eitt og hið sama sama, hver svo sem fjárhagsstaða okkar er. Því hef ég sett saman gjöf handa þér sem inniheldur leiðbeiningar um það hvernig þú getur stigið þetta fyrsta skref.
Fylgdu þessum hlekk til að nálgast gjöfina þína
Peningaáskoranir eru ekki háðar tekjum
Sjáðu fyrir þér hvernig líf þitt væri ef þú þyrftir ekki að kljást við áskoranir tengdar peningum. Athugaðu að hér á ég ekki aðeins við áskoranir á borð við skuldir og ónóga innkomu. Ég á einnig við áskoranir eins og að halda fast í peningana sem þú hefur safnað, af einskærum ótta við að fjárfesta. Annað dæmi er að óttast fjármálaumsýslu, þrátt fyrir háar tekjur. Í því tilfelli glímir þú sennilega við hugsanir sem snúa að því að finnast þú eiga að kunna að fara betur með peningana sem þú aflar en fyllist svo vonleysi eða óöryggi við tilhugsunina um að taka völdin í peningamálunum.
Önnur áskorun getur verið sú tilhneyging að eyða því sem þú aflar, þrátt fyrir að í raun og veru þráir þú að leggja fyrir til að skapa fjárhagslegt öryggi til framtíðar. Enn aðrir glíma við að ná ekki peningamarkmiðum sínum vegna þess að þarfir annarra ganga fyrir og þeir eiga erfitt með að setja mörk þegar kemur að peningum. Áskoranirnar geta því verið af ýmsum toga og þetta eru aðeins nokkur dæmi um það.
Fjárhagslegt frelsi á 12 vikum
Hvort sem þú hefur það að markmiði að ná fjárhagslegu frelsi á næstu mánuðum eða árum eða fjárhagslegt frelsi er fjarlæg hugmynd í huga þér, þá er sannleikurinn sá að öll þurfum við skýra áætlun til að geta náð því markmiði að skapa fjárhagslegt frelsi.
Undanfarið hef ég unnið hörðum höndum að því að setja saman netnámskeið sem ber yfirskriftina Fjárhagslegt frelsi á 12 vikum. Þar er leiðin að fjárhagslegu frelsi vörðuð, skref fyrir skref.
Efnið byggir á áralangri reynslu minni af fjárhagslegri valdeflingu og aðferðirnar hafa gagnast fjölmörgum til að ná fjárhagslegum markmiðum sínum og búa til sjálfsbært fjármálakerfi sem það getur notfært sér til frambúðar.
Það sem er mest um vert er þó að upplifun hvers og eins af námskeiðinu helgast af sambandi viðkomandi við peninga..
Markmiðið er að hver og einn þátttakandi hafi smíðað sér einstaklingsmiðað fjármálakerfi að 12 vikum liðnum. Þar er sérstaklega tekið mið af mismunandi áskorunum sem fólk hefur þegar kemur að peningum auk þess sem byggt er á styrkleikum hvers og eins.
Kerfið á að vera einfalt í notkun og vekja tilhlökkun og góðar tilfinningar gagnvart peningum. Með því móti verður fjármálaumsýsla skemmtileg í stað þess að valda streitu eins og reyndin er hjá mörgum.
Nánari upplýsingar um Fjárhagslegt frelsi á 12 vikum er að finna hér
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
Af mbl.is
Viðskipti
- Seðlabankinn tvöfaldar vikuleg gjaldeyriskaup
- Fréttaskýring: Að fá að bæta lífskjör sín í friði
- Varar við endurskoðun á reglum
- First Water hafnar ásökunum
- Mörg fyrirtæki sýna Japan áhuga
- Boeing í vandræðum og hlutabréfaverð hrapar
- Gull og kókosolía í hæstu hæðum
- Amaroq sækir 7,6 milljarða og ný leyfi
- Heimar ljúka kaupum á Grósku og Gróðurhúsinu
- Kvika hafnar samrunaviðræðum við Arion banka og Íslandsbanka
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.