Leita í fréttum mbl.is

Mánudagskonan

Nú er óvenjulangur vetur ađ baki og geislar maísólarinnar teknir ađ verma okkur - ađ minnsta kosti um hjartarćturnar. Lóan er komin og sumariđ er á nćsta leiti. Engu ađ síđur kveinkuđu sér margir viđ tóna vekjaraklukkunnar í morgun og freistuđust jafnvel til ađ snúa sér á hina hliđina.

„Ooh fimm daga vinnuvika framundan“ (sem er reyndar óvenjulegt í maí). „Ekki annar mánudagur...“ og ýmislegt í ţeim dúr gerđi vart viđ sig í hugarfylgsnum ţeirra sem stigu ţungum skrefum inn í daginn.

 

Mánudagur til?

Hugmyndin um mánudag til mćđu hefur náđ fótfestu í samfélaginu en óhćtt er ađ segja ađ mánudagur hafi veriđ dćmdur ranglega. Dagurinn markar upphaf nýrrar viku og á sama tíma upphaf nýrra tćkifćra. Hann er táknmynd ţess lögmáls ađ viđ sem manneskjur höfum alltaf val um ađ snúa viđ blađinu. Ađ velja hvernig viđ verjum deginum í dag. Í ţví felst mikiđ vald og heilmörg tćkifćri.

Ţegar ég var sautján ára gömul tók ég međvitađa ákvörđun um ađ gera mánudag ađ uppáhaldsdeginum mínum. Hversdagsleikinn skyldi ekki fá ađ umvefja ţennan dag vikunnar, nema síđur vćri. Ég gerđi mér far um ađ vera vel til fara og gera mér dagamun á mánudögum. Tilhlökkun og hátíđleiki urđu smám saman hluti af ţessum einstaka degi – mánudegi.

Í gegnum árin hefur ýmislegt skemmtilegt bćst á listann yfir mánudagsgjörđirnar. Um nokkurra ára skeiđ gerđi ég mér far um ađ brosa til ókunnugra á mánudögum og slá fólki á förnum vegi gullhamra. Ţađ er einstaklega gefandi iđja, sem ég mćli međ ađ fólki prófi.

 

Prófađu í dag

Nú hvet ég ţig til ađ prófa, ţó ekki sé nema í dag, ađ gera mánudag ađ uppáhaldsdeginum ţínum. Smelltu uppáhaldslaginu ţínu á (i)fóninn, taktu lagiđ, bjóddu elskunni ţinni upp í dans á eldhúsgólfinu, rappađu međ barnabarninu ţínu – í stuttu máli: gerđu ţađ sem vekur međ ţér gleđi.

Var ţađ ekki Gríslingur sem spurđi Bangsimon hver uppáhaldsdagurinn hans vćri og hann svarađi ađ bragđi: „Dagurinn í dag!“


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Edda Jónsdóttir
Edda Jónsdóttir

Edda er leiðtogamarkþjálfi CPC sem sérhæfir sig í valdeflingu einstaklinga og teyma. Pistlar Eddu fjalla um fjárhagslega hæfni, leiðtogafærni og hugarfarsbreytingar.

Edda á og rekur EddaCoaching - www.eddacoaching.com. 

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband