8.11.2016 | 15:31
Peningar, peninganna vegna?
Og þú ert alltaf að fjalla um peninga, staðhæfði maður nokkur um leið og hann lét sig falla í djúpan hægindastól við hlið mér. Við vorum stödd í boði hjá sameiginlegum vinum.
Nei, ég fjalla um samband fólks við peninga og peningahegðun þess, svaraði ég að bragði. Ég tala alls ekki um peninga, peninganna vegna, heldur sem birtingarmynd af ákveðnu hegðunarmynstri. Hvað áttu við með því? spurði maðurinn. Ég skal taka dæmi, sagði ég.
Mismunandi viðhorf til peninga
Tvær vinkonur hittust til að fá sér að borða saman í hádeginu. Þær höfðu verið samstúdentar og fylgst að í gegnum tíðina. Talið barst að fyrirtækjarekstri en báðar áttu þær og ráku eigið fyrirtæki.
Önnur sagði hinni að það væri brjálað að gera hjá henni, fastir viðskiptavinir en greiðslur bærust seint og illa. Laun til starfsmanna gengju alltaf fyrir og því sæti vöxtur fyrirtækisins á hakanum. Hún væri orðin langþreytt á streðinu enda hefði hún lítið upp úr krafsinu. En bætti þó við að vinnan væri í meginatriðum spennandi og samskiptin við samstarfsfólk og viðskiptavini einkar gefandi. Það héldi henni gangandi enda skipt það hana meira máli en peningar.
Hin sagði hinni að hún væri nýbúin að endurskoða alla ferla innan fyrirtækisins með það að markmiði að hámarka nýtni. Hún vildi færa út kvíarnar og auka tekjur fyrirtækisins um fjórðung á næsta rekstrarári. Allt starfsfólk fyrirtækisins væri með á nótunum hvað markmiðið varðaði og ynni að því dag frá degi. Árangurinn léti ekki á sér standa. Áskoranir hennar snéru að starfsmannamálum.
Breytan sem skiptir sköpum
Þetta dæmi endurspeglar samband þessarra tveggja kvenna við peninga. Fyrirtækin sem þær reka eru sambærileg. Menntun þeirra og reynsla svipuð. Eina sem skilur að er samband þeirra við peninga sem endurspeglast með ýmsu móti í rekstri þeirra. Peningahugmyndir þeirra og peningahegðun er breytan sem skiptir sköpum.
Samband þeirrar fyrri við peninga helgast af því að samskipti og tengsl við samstarfsfólk og viðskipavini, skipta hana meginmáli. Bein tenging hennar við peninga er lítil sem engin. Hún sér ekki tilgang með því að gera hlutina fyrir peninga. Undir niðri þráir hún þó stöðugleika í rekstri og að útistandandi greiðslur skili sér með skilvirkum hætti.
Hin konan setur vöxt fyrirtækisins í forgrunn og gerir áætlanir sem byggja á mælanleika. Þannig kemur hún í veg fyrir að tíminn líði án þess að hún nái að fylgjast með framvindu mála. Markmið hennar er skýrt og allir starfsmenn fyrirtækisins vinna að því hörðum höndum.
Hennar áskorun er helst sú að gera ráð fyrir að aðrir séu drifnir áfram af sama eldmóði og metnaði og hún sjálf. Hún á það til að keyra starfsfólkið áfram og gleyma að hrósa því. Það er alls ekki illa meint. Henni finnst einfaldlega hrós vera frekar innantómt, því það er alls ekki það sem drífur hana áfram.
Annað er ekki gott og hitt slæmt
Það er ekki svo að skilja að önnur kvennanna eigi alfarið gott samband við peninga og hin slæmt. Allir glíma við einhvers konar áskoranir og þær birtast gjarnan í sambandi okkar við peninga. Áhrifanna gætir á öllum sviðum lífs okkar.
Fyrir þá sem reka fyrirtæki er sambandið milli peningahegðunar og beinnar afkomu, oft sýnilegra en fyrir þá sem vinna fyrir aðra. Að því sögðu má þó segja að starfsval og laun þeirra sem vinna fyrir aðra, endurspegli samband þeirra við peninga.
Þeir sem reka eigið fyrirtæki eru þó gjarnan dómharðari á eigin peningahegðun en hinir sem starfa fyrir aðra. Það helgast ef til vill helst af því að fólk í rekstri er gjarnan ábyrgt fyrir eigin innkomu og jafnvel innkomu annarra. Því verða þolmörkin minni þegar peningaáskoranir eru annars vegar.
Hvað er til ráða?
Hvað eiga þeir sem bera kennsl á brotalamir í sambandi sínu við peninga, til bragðs að taka? Í fyrsta lagi er góð hugmynd að leita sér hjálpar. Ég get bent á nýtt netnámskeið sem ber heitið Fjárhagslegt frelsi á 12 vikum. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að skoða samband sitt við peninga í nýju ljósi með það að markmiði að öðlast fjárhagslegt frelsi.
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
Af mbl.is
Fólk
- Missti sjónar á móður sinni og gekk inn í miðjar tökur
- Warwick Davis syrgir fráfall eiginkonu sinnar
- Frábrugðin öllum öðrum sýningum
- Metsöluhöfundur með illvígt krabbamein
- Páll Óskar og Edgar Antonio fengu heimboð á Bessastaði
- Þyngdist um 60 kíló nokkrum árum eftir magaermaraðgerð
- Hún er ekki sæt og hefur enga leiklistarhæfileika
- Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision
- Þetta er ekki það sem þjóðin hefur verið að kalla eftir
- Guðrún Dís lýsir Eurovision
Viðskipti
- Kynna fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni
- Ég á þetta ekki, ég má þetta
- Nýir stjórnarformenn yfir dótturfélög Orkuveitunnar
- Ferðalangar ánægðir með pylsurnar
- Unga fólkið þarf öðruvísi aðhlynningu
- Jóhann nýr forstjóri Securitas
- Segir óábyrgt að skipta út öllu bankaráðinu
- Bankaráð svarar aðdróttunum Bankasýslunnar
- Álagning fyrirtækja ekki verðbólguþáttur
- Verðbólgan verði nálægt markmiði árið 2026
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.