11.8.2017 | 14:10
Nokkrar leiðir til að ná árangri í fjármálum
Það dugar skammt að gera það sama aftur og aftur ef það hefur ekki skilað árangri fram að þessu. Þetta á einnig við um peningahegðun. Með öðrum orðum: ef núverandi peningahegðun hefur ekki skilað tilætluðum árangri er kominn tími á breytingar.
Fyrsta skrefið til að ná árangri í peningamálum er að skoða samband þitt við peninga. Ein leið til þess er að að persónugera peninga. Þú getur byrjað á að skrifa niður svör við eftirfarandi spurningum:
- Ef peningar væru manneskja hvernig manneskja væri það?
- Hvað hefði þessi manneskja fyrir stafni?
- Hvernig kæmirðu fram við hana?
- Hvernig kæmi hún fram við þig?
- Væri þetta manneskja sem þú myndir vilja umgangast?
Svörin við þessum spurningum eru líkleg til að opna augu þín fyrir því hvernig sambandi þínu við peninga er háttað. Hafðu samt í huga að samband þitt við peninga getur breyst, alveg eins og samband þitt við sumt fólk breytist á lífsleiðinni.
Hvert er viðhorf þitt til fjársterkra?
Annað sem vert er að skoða í þessu samhengi er viðhorf þitt til þeirra sem fara fyrir miklu fé. Þetta viðhorf endurspeglar að nokkru leyti hugmyndir þínar um peninga. Ef viðhorfið er neikvætt, geturðu spurt þig hvers vegna það er. Hvar liggja rætur þessarar neikvæðni?
Mér finnst sjálfri gott að hafa í huga að peningar eru hlutlausir. Fólk getur hins vegar valið að gera ýmislegt fyrir peninga en gjörðirnar eru á ábyrgð fólksins. Peningar sem slíkir hafa ekki vald til að breyta þó svo að þá megi svo sannarlega nota til breytinga.
Hverju viltu breyta?
Næsta skref er að setjast niður og spyrja sig hvað þarf að breytast þegar kemur að fjármálunum.
Viltu spara meira?
Viltu byrja að leggja fyrir?
Viltu lækka útlagðan kostnað?
Viltu auka tekjurnar?
Viltu gefa meira til góðgerðarmála?
Viltu koma skikki á bókhaldið?
Viltu búa til fjárhagsáætlun?
Viltu fylgja fjárhagsáætlun?
osfrv.
Þegar þú hefur tekið ákvörðun um hvað það er sem þú vilt breyta, geturðu gert áætlun um hvernig þú ætlar að hrinda breytingunum í framkvæmd.
Endurræstu samband þitt við peninga
Í aldanna rás hefur mannskepnan leitað skýringa á samhengi hlutanna. Sjálfsþekking var upphafspunktur í þekkingarleit forngrikkja.
Flest nútímafólk er sammála um að það getur reynst ómetanlegt að taka sér tíma til að líta í eigin barm. Átta sig á stöðu mála. Taka ákvarðanir um hvert halda skuli.
Það gefst frábært tækifæri til þess á hinni vinsælu peninga DNA vinnustofu. Næsta vinnustofa verður haldin í Reykjavík, laugardaginn 26. ágúst. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Desember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Maí 2020
- Desember 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015